17 febrúar 2007

jez

Kannski er loksins kominn tími á smá blogg.
Þorrablótið var fyrir tveimur vikum, þar var villt. Mjög gaman. Ég var blindfull en tókst samt að standa í fæturnar í fínu hælaskónum mínum. Þegar ég kom heim eftir ballið fór ég að sofa í herberginu mínu, en svo vaknaði ég um morguninn í sófanum inn í stofu. Ég veit ekki alveg hvað var í gangi þar.

Síðustu viku hafa svo bara verið rólegar. Kem heim um helgar og rúnta á Tanganum, mestmegnis með Björt (við horfum á stjörnurnar, geggjað rómó), og á virkum dögum geri ég mitt besta til að mæta í skólann. Bætti meiraðsegja við mig einum áfanga í viðbót um daginn, ensku 503. Er reyndar mánuði á eftirá, en það reddast alveg.

Aksturinn gengur mjög vel. Ég get keyrt á milli Tanga og Króks í hvaða veðri sem er, án þess að valda slysum. Mér tókst samt að keyra á blómabúðina á Króknum um daginn, það var pínu fyndið. Sést samt ekkert á kagganum eins og venjulega. Var líka óhugnanlega nálægt því að skemma eitt skilti í Miðfirðinum í gær. Greyið.

Stella varð 18 í vikunni, svo ég, Anna og Sareir bökuðum geggjaða köku. Með áletrun, nammi, kertum og öllu. Það eru nú bara tíu mánuðir í að ég verði 18.
Svo er Ágústa að fara til Danmerkur á morgun. Ég er geðveikt abbó. Hún ætlar samt að senda mér póstkort.

Klára þetta með nokkrum þorrablótsmyndum. Ég er soldið eins og skrímsli, geðveikt hvít í framan og rauðeygð.

Ég, Helga Rakel og Sunna Marý kasólétta :D

Margrét og Ævar

Marie Ann sætasta og ég

Þórey og Helga Una

Anna, Helga Rakel og Jón Gústi

Lára mín :D

Karl Ásgeir og ég í fíling