28 nóvember 2006

sdfsdfdsg

Tveir dagar eftir af skólanum, svo próf. Ég er í prófi bæði fyrsta og síðasta daginn, og prófin mín raðast nokkurnveginn á annan hvern dag, svo ég fæ ekkert frí. Ömó. Mig langar í frí. Verð örugglega bara að vinna allt jólafríið að reyna að moka inn pening.
Það styttist óðum í 17 ára afmælisdaginn, og þar af leiðandi bílprófið. Það lítur samt út fyrir í augnablikinu að ég fái ekki prófið fyrr en í maí eða eitthvað, ég næ ekki sambandi við ökukennarann minn. Ég er samt alveg að fara að kaupa mér bíl, og ég er líka búin að lofa að fara á rúntinn með Björt á bílnum hennar. Það verða endalok lífs míns ef ég fæ ekki prófið fyrir jól :(
Lyklaborðið mitt er með stæla.
Annars er lítið að frétta af mér. Fór heim um helgina og gerði ekki neitt sem var best í heimi.
Skólaleiðinn er gjörsamlega að gera útaf við mig. Ég nenni ómögulega að mæta í skólann. Sem betur fer eru bara tveir dagar eftir, sjáum til hvort ég nenni að mæta eitthvað í skólann þá.
Ég held samt að ég sé að taka mig á í mætingunni. Mætti alveg í tvo tíma í dag, en bara í einn og hálfan í gær. Set markið á þrjá tíma á morgun, ég get það! Áfram fanney!
Ætla suður um helgina. Vonandi kaupa mér bíl.
Farin að föndra, bæ.

-fanneydögg

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ég verð fyrir sunnan um helgina um að gera að hringja bara. En haha skólin hjá mér er búinn bara prófin eftir!!!

28/11/06 23:50  
Blogger fneyd said...

Skólinn hjá mér byrjaði líka viku seinna en hjá þér, RÚST!
En já, hringi ef ég hef tíma, beibí.

29/11/06 00:36  
Anonymous Nafnlaus said...

Hey! líka í mig!!

Og ef ég er að vinna, þá heimsækjirðu mig bara í Rúmfó, mig vantar knús:)

29/11/06 09:11  
Anonymous Nafnlaus said...

og já!

Öh! í fyrra var í búin í skólanum 7. apríl. RÚST!!

29/11/06 09:12  
Blogger fneyd said...

Ágústa, hættu að stríða mér :( En já, sjáum til. Veit ekkert hvað þetta bílastúss tekur langan tíma. Hitti ykkur ef ég get!

29/11/06 09:23  

Skrifa ummæli

<< Home